Er lega hringvegarins einkamál sveitarfélaga?
hnavallalei-40000.jpgFramtíðarlega hringvegarins um Húnavatnssýslur er hluti aðalskipulags sem sveitarfélögin Blönduósbær og Húnavatnshreppur munu kynna á almennum íbúafundi sem boðaður hefur verið í næstu viku. Til fundarins er boðað á vefsíðu Húnahornsins www.huni.is, sjá hér.

Tekið er fram í auglýsingunni að íbúar Blönduóssbæjar og Húnavatnshrepps séu hvattir til að mæta og hafa áhrif á það samfélag sem þeir búa í.


Er það fyrirkomulag sem hér er lýst ákjósanlegt fyrirkomulag um skipulag hringvegarins? Á það að vera einkamál sveitarfélaga til framtíðar hvort að lagðar eru til vegstyttingar eða ekki eða hvort að gæta skuli að mestu umferðaröryggi við legu vegar eða ekki?

Fyrir liggur að mögulegt er að stytta hringveg númer 1 um 20 kílómetra samtals með nýrri legu í Skagafirði og Húnavatnssýslu, sjá nánar á meðfylgjandi korti.
Styttingin sem þarna er möguleg ætti að koma til álita þar sem hringvegur númer eitt snertir landsmenn alla og mögulegar styttingar grunnnets samgöngukerfisins er markmið stjórnvalda skv. núgildandi samgönguáætlun. 

Framkvæmdin sýnir annað. Flutningasvið SVÞ styður markmið samgönguáætlunar og vill sjá þau komast í framkvæmd. Þá sýn kynnti sviðið á fundi í Húnaveri 10. október sl. þar sem þetta mál var til umræðu, sjá hér.

Markmið samgönguáætlunar í framkvæmd er mikilvægt hagsmunamál fyrir landsmenn alla. Til að þess megi vænta þarf breytingar á því fyrirkomulagi sem hér er lýst.