Flutningafræðin fer vel af stað
img_2447.jpgKennsla í flutningafræðinni hófst í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík í vikunni. Aðsóknin fór fram úr björtustu vonum og reyndist meiri en við nokkra aðra námsbraut sem Opni háskólinn hefur farið af stað með. Hópurinn er fullskipaður – 24 einstaklingar eru á námsbrautinni en gert var ráð fyrir hámarki 22 í upphafi, sjá nánar frétt HR hér.

Það er flutningasviði SVÞ mikið fagnaðarefni að aðsóknin sé svo góð sem raun ber vitni. Er það einlæg ósk samtakanna að námið eigi eftir að eflast og þróast og verða mikill styrkur fyrir greinina til framtíðar.