| Almennt um Samtök sjálfstæðra skóla |
|
Aðilar að samtökunum geta verið þeir skólar sem reknir eru af einstaklingum, foreldrum, fyrirtækjum, félagasamtökum eða stofnunum. Stofnfundur samtakanna var haldinn 10. mars 2005. Á stofnfundinum tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, til máls. Hún fagnaði stofnun samtakanna og taldi brýna nauðsyn á að samtökin gætu miðlað upplýsingum til hagsmunaaðila, fjölmiðla, ríkisvalds og sveitarfélaga. Sagði hún að tryggja þyrfti valfrelsi í skólamálum og að sjálfstæðir skólar væru ekki ógnun við menntakerfi landsins heldur tækifæri til að auka við menntunina í landinu. |