|
Matvöruverslanir eiga að læra af tískuverslunum |
Matvöruverslanir standa frammi fyrir umbyltingu. Þær eiga að taka tískuverslanirnar sér til fyrirmyndar þegar kemur að lýsingu og öðru tengdu umhverfi og upplifun viðskiptavinarins í versluninni. Nota má stór skilti og ljósmyndir, nútímalega lýsingu og liti til að skapa réttu stemninguna segir í nýrri rannsókn um þróun smávöruverslunarinnar sem gerð var af EHI Retail Institude. Sú tíð þegar matvöruverslanir lýstu allt húsnæðið með neonröraljósum í loftinu er liðin.
Um alla Evrópu koma sífellt fram nýjar og spennandi innréttingar í
matvöruverslanir þar sem mikið er lagt upp úr skemmtilegri lýsingu, svo
sem díóðuljós (LED), skilti og stórar ljósmyndir. Gert er ráð fyrir að
slík lýsing muni skapa stóran sess í sýningarbásum fyrirtækja á
stórsýningu smávöruverslunarinnar, EuroShop 2008, sem haldin verður í
Þýskalandi nú í febrúar þar sem sýndar eru nýjungar fyrir
smásöluverslunina. SVÞ hefur að venju efnt til hópferðar á sýninguna
og hafa um 40 aðilar skráð sig í ferðina.
|