| Innflutningur á ostum úr ógerilsneyddri mjólk |
FRÉTTATILKYNNINGSVÞ sendu sl. miðvikudag erindi á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti vegna breytinga sem nýlegar hafa verið gerðar varðandi innflutning á ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk. Umræddar breytingar eru á þá vegu að frá og með maí sl. er ferðamönnum nú heimilt að koma með til landsins allt að 1 kg. af ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota. Hins vegar verður fyrirtækjum eftir sem áður óheimilt að flytja sömu vöru til landsins sem og að innlendum framleiðendum er einnig óheimilt að framleiða osta þessa til endursölu. Um leið og SVÞ fagna því að dregið er úr hömlum á innflutningi á umræddum vörum vekur það furðu að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti skuli eftir sem áður viðhalda banni á innflutningi gagnvart tilteknum hópi aðila hér á landi, þ.e. aðilum á sviði verslunar og þjónustu Að mati samtakanna vekur það einnig furðu að lögaðilum sem starfa á grundvelli strangra og ítarlegra heilbrigðiskrafna, sem og annarra opinberra fyrirmæla varðandi rekstur þeirra, skuli meinaður innflutningur á umræddum vörum á meðan ferðamönnum er treyst fyrir að flytja inn til landsins óhindrað sömu vörur. SVÞ telja að höft á innflutningi á vörum þessum sem beinist að tilteknum hópi gangi í berhögg við jafnræðisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Þá kunna slíkar hömlur á innflutningi til tiltekins hóps að ganga gegn mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Loks telja samtökin að þessi mismunum gangi gegn ákvæðum EES-samningsins. Í erindi SVÞ var skorað á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti að afnema án tafar alla mismunum varðandi innflutning á ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk. Erindi til ráðuneytisins. Fréttatilkynning til útprentunar. |