Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Landvari vistaður hjá flutningasviði SVÞ
Aukum kaupmáttinn
Landvari vistaður hjá flutningasviði SVÞ Prenta Tölvupóstur
landvari_025_f._vefinn.jpgAðalfundur Landvara var haldinn á dögunum. Þar var formlega tekin ákvörðun um að leggja félagið í hendur flutningasviðs SVÞ. Þar með var formlega fylgt eftir ákvörðun sem tekin var á aðalfundi félagsins 2006 en síðan þá hafa félagar í Landvara ekki greitt aðildargjöld.
Landvari á sér merka sögu og með þessari ákvörðun er nafni og tilgangi félagsins viðhaldið og er áfram í höndum samtaka sem hafa hagsmuni vöruflutningagreinarinnar á Íslandi að leiðarljósi . Flutningasvið SVÞ er stolt af því að hafa tekist að sameina vöruflutningagreinina undir einum hatti og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið í áratugi á undan hjá samtökum eins og Landvara. Ætlunin er að byggja á þeim merka grunni og halda áfram á sömu braut.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg