Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Forsíđa arrow Endurnýjun kjarasamninga milli SA og ASÍ - stöđugleikasáttmáli
Aukum kaupmáttinn
Endurnýjun kjarasamninga milli SA og ASÍ - stöđugleikasáttmáli Prenta Tölvupóstur
hand_shake.jpgÍ gær var undirritaður nýr kjarasamningur á milli SA og ASÍ og í framhaldi af því stöðugleikasáttmáli á milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga o.fl.   Eins og lesa má í fjölmiðlum var það ekki auðveldur leikur að fá alla þessa aðila til að koma að þessu máli - en aðilum bar á endanum gæfu til að snúa bökum saman og sameinast í þessu miklvæga máli.
 
SVÞ tók þátt  í þessari vinnu í Karphúsinu og studdi SA heilshugar og komu atvinnurekendur fram sem mjög samhentur hópur í þessari samningalotu.  Þó ber sérstaklega að hrósa Vilhjálmi Egilssyni framkvæmdastjóra SA og Gylfa Arnbjörnssyni formanni ASÍ fyrir þeirra þátt í þessum samningum en SA og ASÍ stóðu mjög þétt saman um að draga úr fyrirhuguðum skattahækkunum á samningstímanum en gera þeim mun meiri kröfur á hið opinbera að draga úr ríkisútgjöldum.
 


En stöðuleikasáttmálinn snýst kannski fyrst og fremst um það að samningsaðilar hafa ákveðið að leggjast á eitt um að koma atvinnulífinu aftur í gang þannig að þær dökku spár fyrir komandi ár rætist ekki þ.a. ekki þurfi að koma til allra þeirra skattahækkana og mikla niðurskurðar sem fyrirhugaður er.

Slóð inná vef SA þar sem hægt er að nálgast stöðugleikasáttmálann, samkomulag um framlengingu samninga milli SA og ASÍ og minnisblað um verklegar framkvæmdir.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Skýrsla um vörugjöld

Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg