Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Fréttir
Fréttapóstur SVŢ - 26. júní 2009
Heiti póstsendingar: Fréttapóstur SVŢ - 26. júní 2009
Sendingardagur: 2009-08-20 14:11:57
Útgáfa númer: 35
Efni:
Fréttapóstur SVÞ
Fréttapóstur SVÞ
SVÞ - mynd
1
1
Endurnýjun kjarasamninga milli SA og ASÍ - stöðugleikasáttmáli
hand_shake.jpgÍ gær var undirritaður nýr kjarasamningur á milli SA og ASÍ og í framhaldi af því stöðugleikasáttmáli á milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga o.fl.   Eins og lesa má í fjölmiðlum var það ekki auðveldur leikur að fá alla þessa aðila til að koma að þessu máli - en aðilum bar á endanum gæfu til að snúa bökum saman og sameinast í þessu miklvæga máli.
 
SVÞ tók þátt  í þessari vinnu í Karphúsinu og studdi SA heilshugar og komu atvinnurekendur fram sem mjög samhentur hópur í þessari samningalotu.  Þó ber sérstaklega að hrósa Vilhjálmi Egilssyni framkvæmdastjóra SA og Gylfa Arnbjörnssyni formanni ASÍ fyrir þeirra þátt í þessum samningum en SA og ASÍ stóðu mjög þétt saman um að draga úr fyrirhuguðum skattahækkunum á samningstímanum en gera þeim mun meiri kröfur á hið opinbera að draga úr ríkisútgjöldum.
 
Lesa meira...
 


Landbúnaðarráðherra úthlutar ekki WTO kvótum – SVÞ mótmælir
wto_logo.gifMeð tilkynningu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti frá 19. júní er frá því greint að ráðuneytið hyggist ekki auglýsa tollkvóta á tilteknum landbúnaðarvörum, þrátt fyrir að samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem Ísland er aðili að kveði á um skyldu ríkja í þessu sambandi. SVÞ hefur þegar sent ráðuneytinu formleg mótmæli vegna þessarar ákvörðunar og er í bréfinu vísað til þeirrar ótvíræðu skyldu sem hvílir á stjórnvöldum að þjóðarrétti að virða gerða alþjóðasamninga.


Lesa meira...
 


Leiðbeiningarreglum Talsmanns neytenda mótmælt

talsmaur_neytenda.jpgSVÞ hefur á ný þurft að koma þeirri ábendingu á framfæri við embætti Talsmanns neytenda að s.k. Leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna, eru eins og nafn þeirra segir til um leiðbeiningarreglur. Tilefnið er það að margt bendir til að embættið hyggist ganga of langt í því að þvinga verslanir til að fylgja þessum reglum.


Bréf SVÞ fylgir hér með.

 


„Sykurskattur“
merki_sv_fyrir_augl.gifÍ frumvarp til laga um ráðstafanir í rikisfjármálum, bandorminum svonefnda, sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir hækkun á virðisaukaskatti á tilteknum matvörum. Látið hefur verið að því liggja að hér sé fyrst og fremst um að ræða vörur sem innihalda sykur. Því er hins vegar alls ekki til að dreifa þar sem jafnframt því að færa sykur og ýmsar sykurvörur í efra þrep virðisaukaskattsins á ný, er það jafnframt gert við ýmsa neysluháa vöruflokka eins og kolsýrt vatn og ávaxtasafa, sem Lýðheilsustöð hefur hvatt til aukinnar neyslu á. SVÞ hefur mótvælt þessum áformum  með þeim rökum m.a. að skattkerfið sé notað til að stýra neyslu almennigs.
Samtök atvinnulífsins sendu ítarlega umsögn um frumvarpið og fylgir hún hér með.

Lesa meira...
 


Landvari vistaður hjá flutningasviði SVÞ
landvari_025_f._vefinn.jpgAðalfundur Landvara var haldinn á dögunum. Þar var formlega tekin ákvörðun um að leggja félagið í hendur flutningasviðs SVÞ. Þar með var formlega fylgt eftir ákvörðun sem tekin var á aðalfundi félagsins 2006 en síðan þá hafa félagar í Landvara ekki greitt aðildargjöld.
Landvari á sér merka sögu og með þessari ákvörðun er nafni og tilgangi félagsins viðhaldið og er áfram í höndum samtaka sem hafa hagsmuni vöruflutningagreinarinnar á Íslandi að leiðarljósi . Flutningasvið SVÞ er stolt af því að hafa tekist að sameina vöruflutningagreinina undir einum hatti og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið í áratugi á undan hjá samtökum eins og Landvara. Ætlunin er að byggja á þeim merka grunni og halda áfram á sömu braut.


Lesa meira...










1
 


SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu - Borgartúni 35 - 105 Reykjavík - svth@svth.is - www.svth.is

1

Þín áskrift:
[SUBSCRIPTIONS]

Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Skýrsla um vörugjöld

Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg