Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Átakiđ „Aukum kaupmáttinn“ hefur vakiđ mikla athygli
21. maí 2013
svth_300313_01_f._vef.jpgÁtak SVÞ „Aukum kaupmáttinn“ sem hleypt var af stokkunum laugardaginn fyrir páska hefur tvímælalaust vakið mikla athygli. Samkvæmt mælingum Fjölmiðlavaktarinnar hefur verið fjallað um SVÞ 186 sinnum í fjölmiðlum það sem af er þessu ári. Stærstur hluti fjölmiðlaumræðunnar hefur með einum eða öðrum hætti tengst þessu átaki.

Svo sem kunnugt er var tilgangurinn með átakinu að vekja stjórmálamennina okkar til umhugsunar um þá miklu möguleika sem felast í því að lækka vöruverð og þar með bæta kjör alls almennings í landinu. Í því ljósi verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig tekið verður á áherslumálum samtakanna í stjórnarsáttmála þeirrar ríkistjórnar sem tekur við völdum innan skamms.

Lesa meira...
 
Fríverslunarsamningur viđ Kína undirritađur
21. maí 2013
china-iceland-signing-ceremony.jpgEins og komið hefur fram var í apríl s.l. undirritaður fríverslunarsamningur milli Íslands og Kína. Samningur þessi er á margan hátt sögulegur þar sem hann er fyrsti samningur sinnar tegundar sem Kína gerir við Evrópuríki. Samningurinn er hefðbundinn fríverslunarsamningur að flestu leyti og nær bæði til vöru- og þjónustuviðskipta.

Að því er útflutningshagsmuni Íslands varðar þá falla niður tollar á öllum helstu útflutningsvörum okkar, en 90% af útflutningi til Kína eru sjávarafurðir. Í flestum tilfellum taka þessi ákvæði gildi þegar við gildistöku samningsins . Ísland fellir niður tolla á öllum vörum að undanskildum tilteknum landbúnaðarafurðum.  Samningurinn mun því hafa þau áhrif að meiri hvatning en áður verður til þess að flytja vörur beint inn frá Kína, þar sem enn meira hagræði verður af beinum innflutningi en verið hefur. Er full ástæða til þess að hvetja þau fyrirtæki sem stunda viðskipti við kínversk fyrirtæki að huga enn betur að þessum möguleika þegar samningurinn hefur tekið gildi.


Lesa meira...
 
Dagvörumarkađur er virkur samkeppnismarkađur
21. maí 2013
matur_i_poka.jpgBlaðagrein birt í Morgunblaðinu 18. maí sl.
Höfundur: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ
Dagvörumarkaðurinn á Íslandi gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og býr við það að vera reglulega umfjöllunarefni á opinberum vettvangi. Tilefni þess að opinber umræða verður um dagvörumarkaðinn er oftast tengd reglulegum verðkönnunum ASÍ, þróun á gengi íslensku krónunnar og tengslum þess við verðlag á dagvöru eða haftastefnu stjórnvalda sem verslunin býr við.

Virkur samkeppnismarkaður
Óhætt er að fullyrða að fáir ef nokkrir markaðir á Íslandi búi við eins virka samkeppni og dagvörumarkaðurinn. Fyrirtæki á dagvörumarkaði heyja stöðugt baráttu um hylli neytenda og er birtingarmynd þeirrar baráttu einkum það mikla magn auglýsinga sem daglega birtist okkur í fjölmiðlum. Óumdeilt er að enginn einn markaður á Íslandi býr við viðlíka eftirlit af hálfu samkeppnisyfirvalda og dagvörumarkaðurinn, en skýrsla Samkeppniseftirlitsins sem ber heitið „Verðþróun og samkeppni á matvörumarkaði“ frá því í janúar 2012, sýnir vel hversu mikla áherslu samkeppnisyfirvöld leggja á þennan markað. Í þeirri skýrslu er t.a.m staðfest að skattkerfisbreytingarnar í mars 2007 (lækkun vsk. á matvæli úr 14% í 7% og afnám vörugjalda) skilaði sér að fullu til neytenda.


Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 3 af 921
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Skýrsla um vörugjöld

Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg