| Brestir í innviđum ríkisins - smáríki, stjórnun ţeirra og veikleikar |
|
|
Eins og félagsmenn SVÞ þekkja vel þá er eitt meginhlutverk SVÞ að verja hagsmuni verslunar og þjónustu í landinu. Slíkt hlutverk verður ekki rækt nema með nánum samskiptum við hið opinbera. Ákvarðanir ríkisins eru þó oft markaðar veikum forsendum og því er hlutverk SVÞ – sem og annarra hagsmunasamtaka – afar mikilvægt. Brotalamir opinbers eftirlits hafa komið í ljós bæði hér heima sem og erlendis á undanförnum misserum. Skýringar eru margar en ekki eru allir sammála um hver meginorsökin er. Vanhæfni er þó vafalaust hluti vandans. Lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, Ólafur Reynir Guðmundsson, mun þann 16. og 17. mars halda námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands um „Bresti í innviðum ríkisins“. Titill námskeiðsins vísar til enska hugtaksins „government failure“ sem snýr að því þegar ríkið nær ekki markmiðum sínum og hefur jafnframt neikvæð áhrif með athöfnum sínum eða athafnaleysi. Námskeiðið fjallar ekki um hrun hins íslenska bankakerfis heldur mun áhersla vera lögð á að fara yfir af hverju ríkinu gengur svo illa að taka „hina bestu mögulegu ákvörðun“. Fjallað verður um eðli ríkisins, um veikleika í þrískiptingu þess og hvað hægt sé að gera svo við öll getum notið betri ákvarðana hins opinbera. Sjá hér auglýsingu á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands. |