Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa arrow Forsíđa arrow Brestir í innviđum ríkisins - smáríki, stjórnun ţeirra og veikleikar
Brestir í innviđum ríkisins - smáríki, stjórnun ţeirra og veikleikar Prenta Tölvupóstur
merki_sv_fyrir_augl.gifEins og félagsmenn SVÞ þekkja vel þá er eitt meginhlutverk SVÞ að verja hagsmuni verslunar og þjónustu í landinu. Slíkt hlutverk verður ekki rækt nema með nánum samskiptum við hið opinbera. Ákvarðanir ríkisins eru þó oft markaðar veikum forsendum og því er hlutverk SVÞ – sem og annarra hagsmunasamtaka – afar mikilvægt. 

Brotalamir opinbers eftirlits hafa komið í ljós bæði hér heima sem og erlendis á undanförnum misserum. Skýringar eru margar en ekki eru allir sammála um hver meginorsökin er. Vanhæfni er þó vafalaust hluti vandans. 

Lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, Ólafur Reynir Guðmundsson, mun þann 16. og 17. mars halda námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands um „Bresti í innviðum ríkisins“. Titill námskeiðsins vísar til enska hugtaksins „government failure“ sem snýr að því þegar ríkið nær ekki markmiðum sínum og hefur jafnframt neikvæð áhrif með athöfnum sínum eða athafnaleysi.



Námskeiðið fjallar ekki um hrun hins íslenska bankakerfis heldur mun áhersla vera lögð á að fara yfir af hverju ríkinu gengur svo illa að taka „hina bestu mögulegu ákvörðun“. Fjallað verður um eðli ríkisins, um veikleika í þrískiptingu þess og hvað hægt sé að gera svo við öll getum notið betri ákvarðana hins opinbera.

Sjá hér auglýsingu á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg