| Rannsóknarsetur verslunarinnar – mikilvćg starfsemi |
|
|
Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur nú starfað í rúmlega þrjú ár en rekstri setursins var hleypt af stokkunum haustið 2006. Starfsemin var í upphafi hugsuð sem tilraunaverkefni sem yrði síðan endurskoðuð í ljósi reynslunnar. Óhætt er að fullyrða að reynslan af starfsemi setursins hafi verið góð og mikilvægt fyrir verslunina í landinu að áframhald verði á starfseminni.Núverandi samningur um Rannsóknarsetur verslunarinnar rennur út í lok júlí á þessu ári. Stjórn SVÞ hefur fjallað um málið og leggur áherslu á að framtíð setursins verði tryggð. Óhjákvæmilegt er þó að nokkur breyting verði á fjármögnun þess og leggja verður auknar áherslu á hlutfall sértekna sem hlutfall af tekjum setursins. Einnig er afar mikilvægt að aðkoma hin opinbera með beinum fjárstuðningi verði tryggð sem telja verður mikið sanngirnismál þegar höfð eru í huga þau gífurlegu framlög sem hið opinbera veitir til rannsóknarstarfsemi hjá ýmsum öðrum atvinnugreinum. SVÞ mun því vinna ötullega að því á næstunni að tryggja rekstur Rannsóknarseturs verslunarinnar til framtíðar. |