Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Rannsóknarsetur verslunarinnar – mikilvæg starfsemi
Rannsóknarsetur verslunarinnar – mikilvæg starfsemi Prenta Tölvupóstur
logo_rsv_m_hb.jpgRannsóknarsetur verslunarinnar hefur nú starfað í rúmlega þrjú ár en rekstri setursins var hleypt af stokkunum haustið 2006. Starfsemin var í upphafi hugsuð sem tilraunaverkefni sem yrði síðan endurskoðuð í ljósi reynslunnar. Óhætt er að fullyrða að reynslan af starfsemi setursins hafi verið góð og mikilvægt fyrir verslunina í landinu að áframhald verði á starfseminni.



Núverandi samningur um Rannsóknarsetur verslunarinnar rennur út í lok júlí á þessu ári.

Stjórn SVÞ hefur fjallað um málið og leggur áherslu á að framtíð setursins verði tryggð. Óhjákvæmilegt er þó að nokkur breyting verði á fjármögnun þess og leggja verður auknar áherslu á hlutfall sértekna sem hlutfall af tekjum setursins. Einnig er afar mikilvægt að aðkoma hin opinbera með beinum fjárstuðningi verði tryggð sem telja verður mikið sanngirnismál þegar höfð eru í huga þau gífurlegu framlög sem hið opinbera veitir til rannsóknarstarfsemi hjá ýmsum öðrum atvinnugreinum.

SVÞ mun því vinna ötullega að því á næstunni að tryggja rekstur Rannsóknarseturs verslunarinnar til framtíðar.
 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVÞ




Viðburðir á vegum SVÞ

Skráning á öll námskeið er á
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg