|
Verslanir geta aukið umhverfisvitund neytenda |
|
|
Umverfismál í innkaupavagninum er nýtt fræðslurit sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur gefið út og hefur að geyma aðgengilegt efni um hvernig starfsmenn verslana geta haft mótandi áhrif á umhverfisvitund viðskiptavina sinna og dregið úr umhverfisáhrifum verslananna sjálfra.
Leitað var til ýmissa sérfræðinga við efnisöflun og framsetningu. Höfundar eru Hafdís Anna Bragadóttir, Lára Jóhannsdóttir og Stefán Gíslason. Meðal ráðgjafa voru Umhverfisstofnun og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Grafíska hönnun annaðist Magnús Valur Pálsson og umsjón með útgáfunni hafði Emil B. Karlsson. Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og Styrktar- og menningarsjóður Norvikur styrktu útgáfuna.
Ritið nýtist þeim sem vilja fræðast á eigin forsendum og hentar einnig
vel til kennslu innan fyrirtækja eða í almennu fagnámi fyrir
verslunarfólk. Framsetning er öll aðgengileg, mikið er af
skýringarmyndum og lýsandi dæmum úr raunveruleikanum. Þá eru í lok
hvers kafla spurningar og verkefnahugmyndir til að tengja efnið betur
þeim veruleika sem starfsmenn verslana eru í dags daglega.
Verð ritsins er 500 kr. Hægt er að panta það með því að hringja í
síma Háskólans á Bifröst 433 3000 eða með tölvupósti til
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Sýnishorn af innihaldi ritsins.
|