Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Forsíða arrow Skýrsla um brotastarfsemi útlendinga
Skýrsla um brotastarfsemi útlendinga Prenta Tölvupóstur
forsa_skrsla_27_01_10.jpg S.l. haust skipaði dómsmálaráðherra vinnuhóp sem hafði það hlutverk að skila ráðherra skýrslu um möguleika stjórnvalda til þess að efla eftirlit og viðbrögð við brotastarfsemi útlendinga hér á landi. Nánar átti vinnuhópurinn að kanna hvaða möguleikar væru til staðar innan gildandi laga og þess alþjóða samstarfs sem Ísland er þátttakandi í til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi útlendinga hér á landi.

Var vinnuhópnum falið að skoða þetta efni bæði með hliðsjón af þeim útlendingum sem þeim útlendingum sem um gilda reglur um frjálsa för samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem þær reglur gilda ekki um.  Vinnuhópurinn átti m.a. að skoða hvort unnt væri að taka upp tímabundið vegabréfaeftirlit eða ókerfisbundið eftirlit bæði á landamærum og innan þeirra og koma með tillögur um úrbætur.

Samkvæmt lögum um útlendinga nr. 96/2002 er heimilt að vísa útlendingum úr landi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Eins og félagsmenn SVÞ vita hafa samtökin mjög gagnrýnt að þessum heimildum hafi ekki verið beitt eins og lögin heimila en almennt eru menn þeirrar skoðunar að brottvísum sé skilvirkasta úrræðið til að stemma stigu við brotastarfsemi erlendra ríkisborgara hér á landi.

Vinnuhópurinn hefur nú skilað skýrslu sinn til ráðherra með tillögum í alls 16 liðum um á leiðir til úrbóta. Öryggishópur SVÞ mun fjalla um skýrsluna og tillögur hennar á fundi í næstu viku og í framhaldi af því munu samtökin taka upp viðræður við dómsmálaráðuneytið þar sem viðhorf okkar til skýrslunnar verða kynnt og þau atriði hennar sem við munum leggja sérstaka áherslu á að koma í framkvæmd.

Skýrsla vinnuhóps um möguleika stjórnvalda til þess að efla eftirlit og viðbrögð við brotastarfsemi útlendinga.

 
sssk_banner.png

Fréttapóstur SVÞ




Viðburðir á vegum SVÞ

Skráning á öll námskeið er á
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg