| Nýtt aðildarfyrirtæki |
|
|
Bílaþvottastöðin LöðurBílaþvottastöðin Löður var stofnuð árið 1992 og eru starfræktar fimm bílaþvottastöðvar á höfuðborgarsvæðinu með öllum tegundum af þjónustu, allt frá sjálfsafgreiðsluþvottastöðvum upp í bónstöð með fullri þjónustu. Á þessu ári bætist við sjötta þvottastöðin sem verður stærsta stöðin og mjög glæsileg að Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur. Löður hefur um árabil verið í fararbroddi bílaþvottastöðva og flutt inn nýjungar í bílaþvotti sem bætt hafa þvottinn og alla meðferð bílsins, aukið þægindi bílaeigenda og boðið upp á meiri afköst. Meðal nýjunga núna eru viðskiptakort Löðurs, en boðið er upp á viðskiptakort fyrir stærri fyrirtæki og inneignarkort fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Hægt er að sækja um viðskiptakort núna á www.lodur.is en áætlað er að viðskiptakort með inneign verða tilbúin seinnipartinn í mars. Viðskiptakort: Er ætlað stærri fyrirtækjum í viðskiptareikning hjá Löðri. Gefin er stighækkandi afsláttur miðað við notkun. Ávinningur fyrirtækja - Hagkvæmt kort ætlað fyrirtækjum sem einfaldar þrifin á bílaflotanum - Viðskiptareikningur hjá Löðri, innheimt mánaðarlega - Betri yfirsýn og nákvæm yfirlit, staða á viðskiptareikningi, notkun kortanna, kvittanir, reikningar og viðskiptayfirlit - Fyrirtæki ákveður heimildarupphæð fyrir mánuðinn - Möguleiki á mörgum kortum eftir stærð bílaflotans - Frábært öryggi, auðvelt að koma í veg fyrir misnotkun - Hægt að fylgjast með því hvaða bíll var þveginn, hvenær og hver notaði kortið - Fullkomnar og afkastamiklar þvottastöðvar spara tíma - Hreinn bíll eykur ánægjuna, vekur eftirtekt og auglýsir eigandann - Reglulegur þvottur skilar sér í betra lakki, fallegri bíl og í hærra endursöluverði Sjá vef Löðurs www.lodur.is |