Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Um stefnumótun til framtíđar – Sóknaráćtlun 20/20 Prenta Tölvupóstur
skjaldarmerki.jpgRíkisstjórn Íslands hefur ákveðið að vinna að verkáætlun um hvernig leggja megi grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi. Markmið áætlunarinnar er að Ísland skipi sér á ný í ,,fremstu röð í verðmætasköpun, menntun, velferð og sönnum lífsgæðum,“ eins og segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.  Verkefnið ber nafnið  „20/20 - Sóknaráætlun fyrir Ísland“.

Samtök verslunar og þjónustu - SVÞ fagna því að farið sé að huga að nýjum tækifærum í íslensku samfélagi og að ríkisstjórnin eigi frumkvæði að því. SVÞ telur hins vegar afar mikilvægt að í slíku verkefni verði stjórn verkefnisins ekki í höndum stjórnmálamanna sem e.t.v. hafa síður tíma og yfirsýn til að bera þunga ábyrgð í verkefnastarfi þessu.

Það sem verkefnið snýst raunar um er stefnumótun fyrir Ísland. Slíkt er umfangsmikið verk og krefst mun meira en almennra samráðsfunda um land allt – jafnvel þótt góðar hugmyndir sé víða að finna.  Stefnumótun hefur hingað til ekki verið sterkasta hlið þjóðarinnar og má mörgu um kenna. Hugsanlegt er nýting helstu náttúruauðlindar þjóðarinnar – sjávarfangs – hafi hér áhrif enda breytast skilyrði í náttúrunni frá ári til árs sem oft hefur mikil áhrif á verðmætasköpun.
 
Mikilvægt er að þegar áhrifaaðilar í samfélaginu koma saman til ráðagerða um stefnu þjóðarinnar í atvinnumálum að áhersla sé lögð á að tengja saman skemmri og lengri tíma hagsmunamat.  Ekki verður lengur við það unað að einungis sé litið til skemmri tíma þar sem slíkt leiðir óhjákvæmilega til sóunar þegar til lengri tíma er litið. Hitt er að án vel unninnar áætlunar um skemmri tíma stefnu er ógerningur að setja stefnu til lengri tíma. Hér verður jafnvægi að ríkja.

Af þessu tilefni vill SVÞ koma fram með vinsamlega áhendingu um að stjórnmálamenn leiki ekki aðalhlutverk í stefnumótun til framtíðar. Stjórnmálamenn hafa almennt séð skemmri tíma hagsmunamat og ekki fer alltaf saman hagur þjóðar og stjórnmálastéttar. Brýnt er að við stefnumótun til framtíðar sé leitað til sérfræðinga, alþjóðlegra sem innlendra, sem skýra sýn hafa á því hvaða raunhæfu markmið og stefnu þjóðin getur tekið.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg