Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Samgönguráð boðaði til fundar um samgönguáætlun
Samgönguráð boðaði til fundar um samgönguáætlun Prenta Tölvupóstur
100111-rounarvettvangur_samgngumla.jpgÞróunarvettvangur samgöngumála er tengslanet  sérfræðinga úr háskólasamfélaginu af víðu sviði samgangna  og hagsmunaaðila atvinnulífs. Enn er einungis fulltrúi flutningasviðs SVÞ aðili að hópnum af hálfu atvinnulífsins en hópurinn er enn að fæðast og langt frá því fullmótaður.

Vettvangurinn hefur unnið markvisst að því síðan í haust að nálgast stjórnkerfi samgöngumála í þeim tilgangi að koma skýrum skilaboðum á framfæri um mikilvægi þess að taka málaflokkinn til endurskoðunar.


Hópurinn hefur gefið út að hann sé ekki tilbúinn með eina rétta lausn heldur hefur þrýst á stjórnvöld að tryggja víða sérfræðiþekkingu til að gera tillögur að nýju verklagi. Samgöngur eru gríðarlega vítt svið og málaflokkurinn skiptir alla landsmenn miklu máli. Fátt skiptir meira máli en að vandað sé til verka.

Samgönguráð boðaði til fundar með hópnum í vikunni þar sem þróunarvettvangnum var m.a. gefið tækifæri til að kynna áherslur sínar. Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs SVÞ fór fyrir hópnum -má finna kynninguna hér.

Á fundinum kynnti Þorsteinn R. Hermannsson byggingaverkfræðingur hjá Mannviti og ráðgjafi stjórnvalda um samgönguáætlun niðurstöður samráðsfunda með sveitarfélögum og SA frá því fyrr á árinu og tillögur þeirra og VSÓ í framhaldi að valkostum í umhverfismati samgönguáætlunar.

Fulltrúi flutningasviðs SVÞ lét koma fram að hún hefði óskað þess að stjórnvöld hefðu kallað eftir víðri sérfræðiþekkingu við mótun samgönguáætlunar í stað þess að gera það eftir á. Það væri einmitt forgangsatriði í málaflokknum að hennar mati að stjórnvöld sýndu áhuga á að nýta sér víða þekkingu við mótun langtímastefnu um samgöngumál í stað þess verklags sem viðhaft hefði verið og væri enn.
Erindisbréf, verkefni og skipan í hópa samgönguáætlunar eru nú aðgengileg á vef samgönguráðuneytisins og má finna hér: http://samgonguaaetlun.samgonguraduneyti.is/Vinnuhopar/

Er áhugasömum um samgönguáætlun bent á að kynna sér þessar upplýsingar.

Eins og marg hefur komið fram er það mat flutningasviðs SVÞ að það sé mjög brýnt að ná fram breytingum á verklagi stjórnvalda í þessum málaflokki. Það liggur fyrir að þær breytingar hafa ekki náð fram að ganga við gerð samgönguáætlunar sem lögð verður fram á vorþingi en áfram verður unnið markvisst að málinu. Breytt verklag - samræmd opinber og skýr aðferðafræði sem byggir á heildstæðri sýn - er stærsta einstaka hagsmunamál flutningagreinarinnar til lengri tíma.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg