| Hvatt til vandaðs verklags við endurskipulagningu samgöngustofnana |
|
|
Flutningasvið SVÞ upplýsti í fréttabréfi 18. desember sl. að ákvörðun hefði verið tekin um endurskipulagningu stjórnsýslustofnana samgönguráðuneytisins. http://www.svth.is/content/view/966/84/ Flutningasviðið setur sig alls ekki upp á móti breytingum á stofnunum samgönguráðuneytisins en lætur í ljósi það álit að ráðuneytið vandi sig við framkvæmdina - skýr framtíðarsýn og markmið þar sem fagleg þekking á málaflokknum verði leiðarljósið.
Samgönguráðuneytið hefur ekki kynnt fyrirhugaðar breytingar fyrir
viðskiptavinum sínum hagsmunaaðilum íslensks atvinnulífs eða leitað
álits þeirra. Samgönguráðherra hefur heimsótt stofnanirnar sjálfar þar
sem málið hefur verið kynnt fyrir starfsmönnum. Það vekur athygli að
enga frétt um málið er enn að finna á vef ráðuneytisins eða
stjórnarráðsins. Er ekki ástæða til að upplýsa um það ef ákvörðun hefur
þegar verið tekin um sameiningu stofnana? Það er ástæða til að benda samgönguráðuneytinu á að til eru margar skýrslur Ríkisendurskoðunar þar sem sameiningar stofnana hafa ekki leitt til hagræðingar eða bóta heldur þvert á móti. Af því er mikilvægt að læra og full ástæða til að biðla til samgönguráðherra að hafa skýr markmið að leiðarljósi við fyrirhugaða endurskipulagningu og vita fyrirfram til hvers hún á að leiða. |