| Ákvörðun um sameiningu stofnana undir samgönguráðuneyti |
|
|
Samgönguráðherra hefur tekið ákvörðun um endurskipulagningu á stofnunum ráðuneytisins. Tilkynnt var um þessa ákvörðun á Siglingaráðsfundi í vikunni. Endurskoðunin gengur út á að til verði tvær stofnanir, annars vegar stjórnsýslustofnun og hins vegar framkvæmda- og rekstrarstofnun. Skipt eins og sjá má hér: • Stjórnsýslustofnun: Umferðarstofa, Flugmálastjórn og stjórnsýsluverkefni Siglingastofnunar og Vegagerðar • Framkvæmda- og rekstrarstofnun: Sameining Vegagerðar og framkvæmda- og rekstrarverkefna Siglingastofnunar Þessi útfærsla er ekki í samræmi við niðurstöðu nefndar frá í sumar sem hafði það hlutverk að skoða framtíðarskipan stofnana samgöngumála. Sú nefnd ítrekaði í niðurstöðu sinni að mikilvægt væri að ráðuneytið mótaði skýra stefnu um skipan samgöngustofnana áður en verkinu væri haldið áfram. Mjög mikilvægt væri að vanda til undirbúnings og leggja mat á ýmsa þætti svo sem hagræðingu sem af breytingum hlytist. Ekki liggja fyrir upplýsingar um að slíkt mat hafi verið gert. Ráðherra hefur skipað stýrihóp um stjórn og stefnumótun verkefnisins. Í stýrihópnum eru: Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, formaður. Karl Alvarsson, skrifstofustjóri, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Friðfinnur Skaftason, verkfræðingur, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, ritari stýrihópsins. Ingvar Sverrisson, aðstoðarmaður ráðherra Pétur K. Maack, flugmálastjóri, Flugmálastjórn Íslands Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri, Siglingastofnun Íslands Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu Hreinn Haraldsson vegamálastjóri Hlín Hólm Flugmálastjórn Íslands Stefán Pálsson Siglingastofnun Íslands Ólöf Thorarensen Vegagerðin Sædís Jónasdóttir Umferðarstofa Kynningar á framtíðarskipan samgöngustofnana, mögulegum sameiningum og framtíðarskipan hafa verið kynntar starfsmönnum stofnananna sbr. frétt samgönguráðuneytisins 7. október sl. sem má nálgast hér . Gert er ráð fyrir að frumvarp um sameininguna verði lagt fram í janúar 2010. Aðildarfyrirtæki flutningasviðs SVÞ eiga langflest hagsmunamál sín undir samgönguráðuneyti enda um að ræða flutningsfyrirtæki á landi, lofti og á sjó. Flutningasviðið hefur ekki tekið afstöðu til þessara áætlana en væntir þess að vandað verði til verksins. Þegar frekari upplýsingar liggja fyrir má vænta skýrrar afstöðu sviðsins til breytinganna. Flutningasvið SVÞ gerir þá sjálfsögðu kröfu sem stór viðskiptavinur allra stofnananna að fá kynningu á þeim breytingum sem standa til og að fá aðgang að þeirri vinnu sem er í gangi. Aðildarfyrirtæki flutningasviðsins hafa miklar reynslu af samskiptum við viðkomandi stofnanir og hafa miklu að miðla um hvar megi auka hagræðingu og hvaða þætti þarf að laga. Flutningasvið SVÞ gengur út frá því að ákvarðanir sem teknar verði byggi á raunathugunum hlutlausra aðila um þá kosti og galla sem skipulagsbreytingarnar munu leiða af sér. Fer vel á því að vitna í skýrslu nefndarinnar frá í sumar þar sem segir: Skýr framtíðarsýn er forsenda markvissra og árangursríkra breytinga. |