Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Evrópsk hagsmunasamtök í flutningastarfsemi sameinast um skilaboð til Framkvæmdastjórnar ESB
Evrópsk hagsmunasamtök í flutningastarfsemi sameinast um skilaboð til Framkvæmdastjórnar ESB Prenta Tölvupóstur

flugvl_rnd_lowres.jpgSamgöngur og flutningar verða að komast ofar á forgangslistann við framtíðarstefnumótun Evrópusambandsins. Skýrum skilaboðum í þessa veru hafa 9 evrópsk hagsmunasamtök í öllum greinum samgangna komið á framfæri við José Manuel Barroso forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.Samtökin létu koma fram að þau vildu sjá sterkari og skýrari skuldbindingar um framtíðarstefnumótun í samgöngum og flutningastarfsemi af hálfu Framkvæmdastjórnarinnar og ríkari skilning á mikilvægi greinarinnar fyrir framtíðarþróun Evrópu.

Hagsmunasamtökin sem sameinast um koma þessum skilaboðum til Framkvæmdastjórnarinnar eru:

Iru - International Road Transport Union, AEA - European Airlines, CER - European Railway and Infrastructure companies, EBU - European Barge Union, ECSA - European community shipowner´s Association, EFIP - Federation of Inland Ports, ESO - European Skippers Organization, ESPO - Sea Port Organisation og INE – Inland Navigation Europe.

Samtökin létu koma fram að þau vildu sjá sterkari og skýrari skuldbindingar um framtíðarstefnumótun í samgöngum og flutningastarfsemi af hálfu Framkvæmdastjórnarinnar og ríkari skilning á mikilvægi greinarinnar fyrir framtíðarþróun Evrópu:

„Our sector should be seen and developed with full consideration given to all the complex environmental, economic, social and employment factors that are inseparable from EU transport policy and the achievment of a prosperous, integrated and successful European Union.“  Sjá fréttatilkynningu og bréf samtakanna til Barroso í heild sinni hér.

Atvinnugreinin á Íslandi getur hæglega tekið undir þessi orð evrópskra kollega sinna. Það er augljós þörf á að minna íslensk stjórnvöld á mikilvægi samgangna og flutningastarfsemi  í framtíðarstefnumótun Íslands.

Nýframlagt frumvarp um kolefnisskatt sem með réttu ætti að kalla „samgönguskatt“ er dæmi um að ekki er horft á hlutina í réttu samhengi og ákvarðanir teknar án þess að íhuga afleiðingarnar. Föst krónutala á jarðefnaeldsneyti til skipa, flugvéla og á ökutæki á vegum gerir ekki annað en hækka verð þeirra afurða sem þessi samgöngutæki eru nýtt fyrir. Skatturinn leggst á verð fisksins sem seldur er úr landi a.m.k. þrisvar sinnum:  við veiðarnar, við flutninginn á landi og við flutninginn út hvort sem það er með skipi eða flugi. Samskonar dæmi má taka af ferðaþjónustu.

Samgöngur eru lífæð atvinnulífs og opinberar álögur á greinina birtast í minni samkeppnishæfni útflutningsatvinnugreina og hærra verði í landflutningum innanlands. Umsögn flutningasviðs SVÞ um kolefnisskattinn má finna hér.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg