| Launabreytingar 1. nóvember 2009 |
|
|
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda frá 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta. Nánari upplýsingar er að finna á vef SA, www.sa.is Desemberuppbót Desemberuppbót skv. kjarasamningi við VR og LÍV fyrir árið 2009 er kr. 51.800,- og greiðist eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbót skv. kjarasammningi við RSÍ fyrir árið 2009 er kr. 45.600, - og greiðist eigi síðar en 15. desember. Samkvæmt samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní 2009 tók helmingur umsaminnar hækkunar lágmarkstaxta gildi 1. júlí 2009 en eftirstöðvar koma til framkvæmda 1. nóvember 2009. Launaþróunartryggingu var frestað til 1. nóvember. Launabreytingar 1. nóvember 2009 er sem hér segir:
Framangreindar hækkanir gilda aðallega um samninga landssambanda og -félaga ASÍ. Þær ná að sjálfsögðu ekki til samninga sem eru lausir, t.d. í flugi, blaðamanna, lyfjafræðinga og sjálfstæðra skóla. Ýmsir samningar kveða á um annað fyrirkomulag, s.s. samningar bankamanna, orkufyrirtækja og stóriðju.
Launabreytingar 1. júní 2010 eru sem hér segir:
SA hafa þegar fengið margar fyrirspurnir um þessar launabreytingar en fyrirtækin hafa mörg hver ekki bolmagn til launahækkana. Ekkert fyrirtæki getur vikið sér undan hækkun lágmarkskauptaxta en telji fyrirtæki sér ekki fært að hækka laun 1. nóvember verður það annað hvort að leita eftir samkomulagi við starfsmenn um hvaða kjör skulu gilda frá og með 1. nóvember eða segja ráðningarkjörum upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Lögmenn SA hafa aðstoðað aðildarfyrirtækin við úrlausn þessara erfiðu mála. Á vinnumarkaðsvef SA eru nánari upplýsingar um framkvæmd launabreytinga og breytingar á ráðningarsamningum. |