| Securitas hlýtur starfsmenntaverðlaun 2009 |
|
|
Securitas fékk starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki fyrirtækja árið 2009 fyrir fræðslustarf fyrirtækisins þar sem öryggisvarðanám fær sérstaka viðurkenningu. Starfsmenntaverðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir mannauðs- og fræðslustefnu Securitas en undanfarin ár hefur fræðsla og þróun verið ein af lykiláherslum Securitas.Í flokki skóla- og fræðsluaðila fékk IÐAN fræðslusetur verðlaunin fyrir fjölbreytt fræðslustarf þar sem raunfærnimat fær sérstaka viðurkenningu. Í flokki félagasamtaka og einstaklinga fengu samtökin Stjórnvísi, arftaki Gæðastjórnunarfélags Íslands, verðlaunin fyrir faghópastarf. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin. Þetta er í tíunda sinn sem Starfsmenntaverðlaununum er úthlutað en að þeim standa Starfsmenntaráð og Mennt, samstarfsvettvangur atvinnulífsins, en verðlaunin eru hugsuð sem hvatning fyrir fyrirtæki sem vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar. |