Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Öryggisnámskeið í aðdraganda jóla Prenta Tölvupóstur
thjofur.jpgSVÞ-Samtök verslunar og þjónustu standa fyrir öryggisnámskeiði í samvinnu við VSI – öryggishönnun & ráðgjöf fimmtudaginn 3. desember nk. kl. 8:30-10:00.

Öryggisnámskeiðið er ætlað starfsmönnum í verslunum og fjallar um búðarþjófnað; eðli, umfang, forvarnir og viðbrögð, einnig er farið yfir innbrotahættur, eðli innbrota á Íslandi og forvarnir þeirra. Að lokum eru kenndar forvarnir vegna vopnaðra rána og viðbrögð starfsfólks við slíkum atvikum.

Kennari er Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur, VSI – öryggishönnun & ráðgjöf

Eyþór hefur víðtæka reynslu á þessu sviði og hefur starfað að öryggismálum í tæp 20 ár m.a. sem öryggisstjóri, ráðgjafi og fyrirlesari.  Eyþór hefur haldið fjölmarga fyrirlestra, bæði fyrir stjórnendur fyrirtækja sem og almenna starfsmenn um nánast allt sem við kemur öryggismálum. Hann hefur mjög mikla þekkingu á sviði mannlegrar öryggishegðunar, öryggisvitundar starfsmanna, innleiðingu og eftirfylgni öryggisráðstafana. 

Staður og stund: Fimmtudagur 3. desember kl. 8:30-10:00,  Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð.
Verð: 4.500,-
Skráning: Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg