| SKATTAMÁL ATVINNULÍFSINS |
|
|
Stórauknar álögur á atvinnulífið – nýtt vsk. þrep veldur sérstökum vonbrigðumStjórnvöld kynntu í vikunni áform sín um skattahækkanir fyrir næsta ár, en áform stjórnvalda í þeim efnum hafa tekið veigamiklum breytingum frá því að fjárlagafrumvarpið var lagt fram í byrjum október. Á ýmsum sviðum hefur verið komið til móts við þau sjónarmið sem atvinnulífið hefur haldið á lofti í viðræðum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins á undanförnum vikum. Á öðrum sviðum hefur það hins vegar alls ekki verið gert og að því er varðar hagsmuni verslunarinnar er það fyrst og fremst nýtt 14% þrep í virðisaukaskatti sem veldur vonbrigðum. Þessum áformum var eindregið mótmælt og hefði tvímælalaust verið eðlilegra að hækka allt 7% þrepið upp í 14% en með því móti hefði skattalækkunin sem gerð var 2007 gengið til baka. Hið nýja 14% þrep leggst á drykkjarvörur, sælgæti og kex. Með þessu er enn á ný verið að innleiða afar óeðlilega neyslustýringu á þessum vörum, auk þess sem innflytjendum og framleiðendum þessara vara er mismunað stórlega. Þá hefur þessi breyting það einnig í för með sér að almennar neysluvörur eru nú komnar í þrjú virðisaukaskattsþrep, sem mun hafa í för með sér aukið flækjustig fyrir verslunina. Sjá hér viðtal við Margréti Kristmannsdóttur formann SVÞ á RÚV. |