| Hugmyndir um kolefnisskatt á eldsneyti til skipa og flugvéla komu fram 2008 |
|
|
Útfærslu stjórnvalda um kolefnisskatt á samgöngur má rekja til skýrslu nefndar um heildarstefnumótun um skattlagningu ökutækja og eldsneytis sem kom út í maí 2008 (bls. 93). Í þeirri skýrslu er farið yfir hugmyndir og stefnumótunarumræðu Evrópusambandsins um hvernig megi stemma stigu við auknum útblæstri frá samgöngum og segir beinlínis í skýrslunni að öll umhverfisrök mæli með því að engin frávik eða undanþágur verði frá kolefnisskattinum, þ.e. hann leggist á kolefnisinnihald viðkomandi eldsneytis án frávika . Þannig segir í skýrslunni að umhverfisrök mæli með því að leggja kolefnisskatt á eldsneyti til skipa og flugvéla þó nefndin leggi það ekki til enda ekki hlutverk nefndarinnar.
Íslensk stjórnvöld kynntu þessa skýrslu fyrir samgönguhópi BUSINESSEUROPE á fundi í Húsi atvinnulífsins í júní 2008 en hópurinn kom þá til fundar á Íslandi undir yfirskriftinni „Transport & Climate Change“ þar sem ljóst var þá þegar að þetta var stærsta viðgangsefni samgöngugreina innan Evrópu til framtíðar litið. Þessi útfærsla íslenskra stjórnvalda er athyglisverð í ljósi þess að aukin samkeppnishæfni er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar. Óhjákvæmileg afleiðing þess að leggja skatt á eldsneyti hvort sem farartækið er flugvél, skip eða bíll er minni samkeppnishæfni og lakari afkoma þeirra fyrirtækja þar sem þessi farartæki eru grunnur starfseminnar. Þetta á við um flutningastarfsemi, ferðaþjónustu, sjávarútveg og verslun. Útflutningsatvinnugreinarnar, verktakastarfsemi og flutningastarfsemi þetta eru þær atvinnugreinar sem íslensk stjórnvöld sjá tækifæri í að skattleggja sérstaklega til að auka tekjur ríkissjóðs. |