Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Hugmyndir um kolefnisskatt á eldsneyti til skipa og flugvéla komu fram 2008
Hugmyndir um kolefnisskatt á eldsneyti til skipa og flugvéla komu fram 2008 Prenta Tölvupóstur
mynd-2-fyrir-vefinn-frettapostur-20-11-2009.jpgÚtfærslu stjórnvalda um kolefnisskatt á samgöngur má rekja til skýrslu nefndar um heildarstefnumótun um skattlagningu ökutækja og eldsneytis sem kom út í maí 2008 (bls. 93). Í þeirri skýrslu er farið yfir hugmyndir og stefnumótunarumræðu Evrópusambandsins um hvernig megi stemma stigu við auknum útblæstri frá samgöngum og segir beinlínis í skýrslunni að öll umhverfisrök mæli með því að engin frávik eða undanþágur verði frá kolefnisskattinum, þ.e. hann leggist á kolefnisinnihald viðkomandi eldsneytis án frávika . Þannig segir í skýrslunni að umhverfisrök mæli með því að leggja kolefnisskatt á eldsneyti til skipa og flugvéla þó nefndin leggi það ekki til enda ekki hlutverk nefndarinnar.

Íslensk stjórnvöld kynntu þessa skýrslu fyrir samgönguhópi BUSINESSEUROPE á fundi í Húsi atvinnulífsins í júní 2008  en hópurinn kom þá til fundar á Íslandi undir yfirskriftinni „Transport & Climate Change“  þar sem ljóst var þá þegar að þetta var stærsta viðgangsefni samgöngugreina innan Evrópu til framtíðar litið.

Þessi útfærsla íslenskra stjórnvalda er athyglisverð í ljósi þess að aukin samkeppnishæfni er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar. Óhjákvæmileg afleiðing þess að leggja skatt á eldsneyti hvort sem farartækið er flugvél, skip eða bíll er minni samkeppnishæfni og lakari afkoma þeirra fyrirtækja þar sem þessi farartæki eru grunnur starfseminnar. Þetta á við um flutningastarfsemi, ferðaþjónustu, sjávarútveg og verslun.

Útflutningsatvinnugreinarnar, verktakastarfsemi og flutningastarfsemi þetta eru þær atvinnugreinar sem íslensk stjórnvöld sjá tækifæri í að skattleggja sérstaklega til að auka tekjur ríkissjóðs.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg