|
Stjórnvöld hafa nú útfært skattabreytingar sínar og þar á meðal svokallaðan „kolefnisskatt“. Kolefnisskatturinn leggst á samgöngur umfram aðrar atvinnugreinar.
Hugmyndir stjórnvalda um kolefnisskatt á eldsneyti má rekja til
hugmynda innan Evrópusambandsins en þar hefur umræða um þessi mál verið
í þróun í langan tíma og sum ríki hafa nú þegar tekið upp kolefnisskatt
á landflutninga.
Ekki er vitað til þess að ríki Evrópusambandsins hafi enn
útfært þennan skatt á eldsneyti til skipa eða flugvéla eins og íslensk
stjórnvöld áætla nú að gera en unnið er að upplýsingaöflun um það.
Það er verulegt áhyggjuefni fyrir íslenskt atvinnulíf hversu
viljug íslensk stjórnvöld eru til að taka hugmyndir Evrópusambandsins
upp á arma sína og ganga lengra í útfærslu þeirra en
Evrópusambandsríkin sjálf gera.
Útfærsla kolefnisskatts á samgöngur sem nú er hrundið í
framkvæmd á Íslandi er skýrt dæmi um slíkt. Enginn hvati er í kerfinu
til að minnka útblástur með því að velja annan kost heldur er um að
ræða beinan skatt sem mun fyrst og fremst leggjast á tilteknar
atvinnugreinar. Flugvélar verða ekki knúnar áfram án jarðefnaeldsneytis, sama má segja um skip - þó væntanlega sé styttra í nýjar tæknilausnir hvað þau varðar. Bein skattlagning eins og hér
um ræðir gerir orkukaup þessara atvinnugreina dýrari en ella en enginn
hvati er til þess að minnka útblástur kolefnis. Því er um hreina
skattlagningu að ræða, skattlagningu á samgöngur umfram aðrar
atvinnugreinar.
Í áherslum BUSINESSEUROPE um málaflokkinn samgöngur sem
kynntar voru í fréttabréfi SVÞ í síðustu viku er einmitt lögð
megináhersla á það að með aukinni áherslu á rannsóknir og nýsköpun
liggi lausnirnar í átt til sjálfbærra flutninga. Skattlagning sé ekki
besta leiðin enda leiðir hún til minnkandi samkeppnishæfni evrópskra
fyrirtækja.
Stjórnvöld hafa fulla samúð flutningasviðs SVÞ að ná fram
aukningu í tekjum ríkisins en það væri eftirsóknarvert að skattlagning
væri hugsuð með ígrundaðri hætti að ekki sé talað um ef hugað væri
betur að samdrætti í kostnaði ríkisútgjalda og er í því efni ítrekað
boð aðildarfélaga flutningasviðs um að aðstoða við það verkefni.
|