| Háir verndartollar á skó afnumdir |
|
|
Þann 19. nóvember síðastliðinn sendu EuroCommcerce, Evrópusamtök verslunar frá sér fréttatilkynningu þar sem því er fagnað að eftir 15 ára verndartollastefnu gagnvart innflutningi á skófatnaði til Evrópu standa vonir til að verndartollar á innfluttan skófatnað frá Kína og Víetnam verði afnumdir í janúar 2010.
Segir meðal annars í tilkynningunni að verndartollastefnan hafi ekki skilað árangri þar sem framleiðsla á skófatnaði hafi ekki flust til Evrópu við þessar aðgerðir og það sé ekkert sem sýni að störf hafi sparast. Slóð inná fréttatilkynningu EuroCommerce er hér . |