Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Samdráttur heldur áfram í smásöluverslun Prenta Tölvupóstur
prosentutakn.jpgSamkvæmt frétt frá Rannsóknasetri verslunarinnar dróst velta í dagvöruverslun  saman um 3,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 9.7% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í október 0,3% frá síðasta mánuði á föstu verðlagi og 4,1% frá október mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 14,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.



Velta í áfengisverslun minnkaði um 25,1% í október miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 0,2% á breytilegu verðlagi. Salan dróst saman um 0,7% frá september mánuði þegar tekið hefur verið tillit til verðlagsbreytinga og árstíðarbundinna þátta. Verð á áfengi var 33,7% hærra í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Fataverslun var 11,7% minni í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 5,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hafði í október hækkað um 19,1% frá sama mánuði í fyrra.

Velta skóverslunar minnkaði um 18,7% í október á föstu verðlagi og jókst um 2,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Í október hafði verð á skóm hækkað um 25,7% frá síðasta ári.

Velta húsgagnaverslana var um 24,1% minni í október en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 14,7% minni á breytilegu verðlagi. Þess má geta að velta síðasta mánaðar var einnig lægri en hún var í október árið 2007. Í síðastliðnum mánuði höfðu húsgögn hækkað um 12,3% frá sama tíma árið áður.

Sala á raftækjum dróst í október saman um 28,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 6,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna september og október dróst raftækjasala saman um 1,5% á föstu verðlagi.

Sjá frétt á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar hér.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg