|
Tækifæri til að hafa áhrif á framtíðarstefnu ESB |
|
|
|
Boð um fund með þátttöku hagsmunaaðila um framtíðarstefnu ESB í samgöngum og flutningum.
Fundurinn er haldinn 20. nóvember 2009 nk. í byggingu
Evrópusambandsins; "Charlemagne" Building, rue de la Loi 170 – 1049
Bruxelles. Þátttaka er öllum opin og ókeypis.
Dagskrá fundarins er að finna hér.
Á fundinum gefst tækifæri til að tengjast beint þeim aðilum ESB og
Framkvæmdastjórnarinnar sem munu fara með þennan málaflokk „transport“
á næstunni auk þess að hægt er koma á framfæri athugasemdum og
ábendingum um stefnu þeirra. Áherslur fundarins með tengingu inn á
TEN-T skjalið sem er stefnumótunarskjal ESB eru:
-
Samþætta flutningsmáta í gegnum stefnu um innviði
samgöngukerfisins í TEN-T. „Green Paper Ten-T: A policy review:Towards
a better integrated transeuropean transport network at the service of
the common transport policy“
-
Efla og stuðla að rannsóknum og nýsköpun til að ná árangri um umhverfisvænni samgöngur og vöru- og fólksflæði.
-
Svara framtíðarþörfum notenda og atvinnulífs um uppbyggingu samgöngukerfisins.
Áhugasamir geta skrá sig hér.
|