|
Forgangsatriði flutningagreinarinnar rædd við Evrópuþingmenn |
|
|
Fulltrúar Samgönguhóps BUSINESSEUROPE, sem m.a. komu til fundar á Íslandi sumarið 2008, gerðu þingmönnum Evrópuþingsins grein fyrir stærstu áherslum atvinnugreinarinnar 2009 – 2014 á morgunverðarfundi 4. nóv. sl.
Áhersla er lögð á á að Evrópuþingið og Framkvæmdastjórnin geri sér grein fyrir og samþætti eftirfarandi áherslur inn í alla stefnumótun og lagasetningu Evrópusambandsins:
-
Framlag flutningastarfseminnar til hagkerfisins
-
Að vinna að virkum innri markaði fyrir flutningastarfsemi á öllum sviðum
-
Að styrkja samþættingu mismunandi tegunda flutninga í stað þess að etja þeim hvorum gegn öðrum
-
Leggja áherslu á rannsóknir og nýsköpun til lausna í átt til sjálfbærra flutninga. Lausnirnar munu fyrst og fremst liggja í nýrri tækni.
-
Betra regluverk - forðast óþarfan og íþyngjandi kostnað vegna skrifræðis og reglugerðafargans
Brian Simpson formaður samgöngunefndar Evrópuþingsins fagnaði framlagi samgönguhópsins og óskaði eftir frekari framlagi atvinnulífsins þegar Framkvæmdastjórnin tekst á við Hvítbókina um þennan málaflokk í byrjun næsta árs.
Áherslur BUSINESSEUROPE um „transport“ 2009 – 2014 má finna hér.
|