Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Forgangsatriði flutningagreinarinnar rædd við Evrópuþingmenn Prenta Tölvupóstur
samgnguhpur_vefur2.jpgFulltrúar Samgönguhóps BUSINESSEUROPE, sem m.a. komu til fundar á Íslandi sumarið 2008, gerðu þingmönnum Evrópuþingsins grein fyrir stærstu áherslum atvinnugreinarinnar 2009 – 2014 á morgunverðarfundi 4. nóv. sl.
Áhersla er lögð á á að Evrópuþingið og Framkvæmdastjórnin geri sér grein fyrir og samþætti eftirfarandi áherslur inn í alla stefnumótun og lagasetningu Evrópusambandsins:

  • Framlag flutningastarfseminnar til hagkerfisins
  • Að vinna að virkum innri markaði fyrir flutningastarfsemi á öllum sviðum
  • Að styrkja samþættingu mismunandi tegunda flutninga í stað þess að etja þeim hvorum gegn öðrum
  • Leggja áherslu á rannsóknir og nýsköpun til lausna í átt til sjálfbærra flutninga. Lausnirnar munu fyrst og fremst liggja í nýrri tækni.
  • Betra regluverk - forðast óþarfan og íþyngjandi kostnað vegna skrifræðis og reglugerðafargans

Brian Simpson formaður samgöngunefndar Evrópuþingsins fagnaði framlagi samgönguhópsins og óskaði eftir frekari framlagi atvinnulífsins þegar Framkvæmdastjórnin tekst á við Hvítbókina um þennan málaflokk í byrjun næsta árs.

Áherslur BUSINESSEUROPE um „transport“ 2009 – 2014 má finna hér.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg