|
Starfsafl og SVS semja við Skeljung hf. |
|
|
Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks undirrituðu í morgun samning við olíufélagið Skeljung hf. um lán á fræðslustjóra. Þetta er fyrsti samningurinn um fræðslustjóra þar sem þessir stóru fræðslusjóðir eru í samvinnu um verkefnið. Samningurinn nær til um um 180 starfsmanna Eflingar og um 95 starfsmanna í Landssambandi íslenskra verslunarmanna og VR hjá Skeljungi.
Fræðslustjórinn mun gera þarfagreiningu á fræðslumálum fyrirtækisins og koma með tillögur að fræðslu sérstaklega ætluðum almennum starfsmönnum samstæðunnar. Skeljungur rekur fjölda þjónustustöðva um allt land. Guðný Hansdóttir, starfsmannastjóri Skeljungs, sagði mikla ánægju og væntingar vera í fyrirtækinu um starf hins tímabundna fræðslustjóra.
Þetta er fyrsti samningurinn um fræðslustjóra sem Starfsmenntasjóður
verslunar- og skrifstofufólks er aðili að. Af því tilefni mættu Andrés
Magnússon, stjórnarformaður og Stefanía Magnúsdóttir, varaformaður
stjórnar sjóðsins, og skrifaði Andrés undir fyrir hönd sjóðsins. Þau
lýstu yfir mikilli ánægju með samstarf sjóðanna á þessu sviði.
Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem Starfsafl hefur boðið
fyrirtækjum síðan í lok árs 2008. Fræðslustjórinn er venjulega
sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í
fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir
fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir
á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni. Þessi
símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi
fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma. Verkefnið hefur mælst vel fyrir
meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.
|