| Ráđlagt frá launahćkkunum |
|
|
Margar verslanir eru illa í stakk búnar til að taka á sig launahækkun segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, í viðtali við RÚV 12. nóvember sl. og ráðleggur stjórnendum fyrirtækja innan samtakanna að semja sig frá kjarasamningsbundnum launahækkunum. Samkvæmt kjarasamningum hækkuðu lægstu laun um tæplega sjö þúsund krónur um síðustu mánaðarmót. Margrét segir að hækkunin eigi eftir að reynast mörgum fyrirtækjum erfið. Innan verslunar- og þjónustu séu fyrirtækin mjög illa í stakk búin til að taka þessa launahækkun á sig. Margrét segist hafa sagt forráðamönnum fyrirtækja innan þeirra raða að ef valið standi á milli þess að þurfa að segja upp fólki til að geta hækkað laun, þá sé hægt að reyna að semja sig frá því að láta þessar launahækkanir fara á til dæmis allra hæstu launin. |