Einungis 52% fyrirtækja skiluðu ársreikningum til ársreikningaskrá fyrir eindaga sem var fyrir u.þ.b. tveimur mánuðum síðan. Hér er um alvarlegt mál að ræða og ekki við því að búast að traust á viðskiptalífið batni nema að hér verði breyting á, en sambærilegar tölur frá nágrannaríkjum okkar sýna að um 90% fyrirtækja uppfylla þessa skyldu sína innan tilskilinna fresta.
SVÞ vilja hér með hvetja þau aðildarfyrirtæki sín sem ekki hafa sinnt þessari skyldu að bæta úr. Það skiptir miklu að gera allt sem hægt er til að auka tiltrú almennings á viðskiptalífinu. Þetta er einn liðurinn í því.
|