| Endurreisn atvinnulífsins - verklagsreglur bankanna |
|
|
Það hvílir mikil ábyrgð á bönkunum og þeim sem þar starfa í þeirri vinnu sem nú stendur yfir innan bankanna við endurskipulagningu fyrirtækjanna. Enginn velkist í vafa að þetta er ekki auðvelt verkefni sem gerir miklar kröfur til starfsmanna um gagnsæi og samræmi í vinnubrögðum. Þó að allir geri sér ljóst að endurskipulagning atvinnulífsins geti ekki farið fram með þeim hætti að fullkomnu réttlæti verði náð, verður að gera þá kröfu til bankanna að ítrustu fagmennsku sé gætt í hvívetna við þetta vandasama verkefni.Sífellt ganga sögur manna á milli um hið gagnstæða, þe. að bankarnir meðhöndli fyrirtæki misjafnlega og að annarleg sjónarmið ráði för. Slíkar sögur eru óþægilegar fyrir alla, ekki síst fyrir starfsmenn bankanna sem vilja örugglega vanda sig í hvívetna. Starfsmenn bankanna hafa lýst því yfir að þeir vilji heyra af þeim dæmum sem menn hafa um óvönduð vinnubrögð innan bankanna í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækjanna. Félagsmenn SVÞ eru því hvattir til að láta skrifstofuna vita af þessum dæmum og munum við sjá um að koma þeim til viðkomandi banka til að unnt sé að ganga úr skugga um sannleiksgildi þeirra |