|
Kynningarfundur um námsbraut í flutningafræðum |
|
|
|
Í síðasta fréttabréfi var upplýst um nýja námsbraut í flutningafræði sem fer í gang í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík eftir áramótin. Kynningarfundur verður haldinn um þessa nýju námsbraut á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi kl. 08:30. Á fundinum gefst tækifæri til að fá upplýsingar um hvað stendur til að kenna á þessari námsbraut og hvaða áherslur verða lagðar.
Umsjónarmenn námsins þeir Kristján M. Ólafsson hagverkfræðingur og Thomas Möller hagverkfræðingur og MBA kynna námið.
Eru allir sem áhuga hafa eindregið hvattir til að mæta. Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn með því að senda upplýsingar um nafn og fyrirtæki á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða á
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Auglýsingu frá HR er að finna hér.
|