|
Samgöngumál eru forgangsmál |
|
|
|
Samgöngur eru og verða eitt mikilvægasta hagsmunamál Íslendinga hvort heldur horft er á búsetu almennings eða atvinnustarfsemi. Bættar samgöngur eru brýnar til að auka samkeppnishæfni atvinnulífs um allt land. Þegar ljóst var hvert stefndi í þessum málaflokki í sumar, skoraði flutningasvið SVÞ á stjórnvöld að leita nýrra lausna í málaflokknum í stað þess að leggja árar í bát. Samfélagið okkar hefur orðið fyrir áfalli en það hefur ekki lagst af og við viljum ekki að áfallið leiði okkur aftur til fortíðar.
Sjá grein sem birtist í Vikudegi 29. okt. 2009 hér... Samgöngumál eru forgangsmál.
|