| Hækkun tryggingagjalds |
|
|
Komið hefur fram óánæja með fyrirhugaða hækkun tryggingagjaldsins og er sú óánægja skiljanleg. Tryggingagjaldið var hækkað í 7% um mitt þetta ár til að rétta af fyrirsjáanlegan halla á atvinnuleysistryggingasjóði. Staðreyndin er sú að atvinnulífið kemst ekki hjá því að borga fyrir atvinnuleysið, en í lögum nr. 113/1990 er kveðið á um þetta atriði:Í 2. gr. laganna segir að fyrir lok október ár hvert skal Atvinnuleysistryggingasjóður gefa fjármálaráðherra skýrslu um fjárhagslega stöðu sjóðsins þar sem gerð er grein fyrir fyrirsjáanlegum útgjöldum á næsta ári með hliðsjón af horfum um atvinnuleysi og öðrum atriðum sem áhrif hafa á fjárhaglega stöðu sjóðsins. Síðar segir í lagagreininni að ef niðurstaða skýrslunnar gefur tilefni til að breyta hundraðshluta atvinnutryggingagjalds (sem er hluti af tryggingagjaldi), skuli fjármálaráðherra flytja frumvarp þar að lútandi á Alþingi. Hagsmunir atvinnulífsins felast því í því að minnka atvinnuleysið eins og kostur er til að unnt verði að lækka tryggingagjaldið á ný og þar með þessar auknu álögur á fyrirtækin. Mikilvægt er hins vegar að taka það fram að Atvinnuleysistryggingasjóður væri að óbreyttu rekinn með 16 milljarða tapi á næsta ári. |