| Friður á vinnumarkaði - en stöðugleikasáttmálinn enn í óvissu |
|
|
Á þriðjudagskvöld tók stjórn SA þá ákvörðun að segja ekki upp kjarasamningum við ASÍ, en þessum launahækkunum hafði áður verið frestað í tvígang. Studdu fulltrúar SVÞ þessa ákvörðun. Það var mat meirihluta stjórnar SA að uppsögn kjarasamninga við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu væri ekki það sem atvinnulífið þyrfti á að halda. Friður á vinnumarkaði er m.a. mjög mikilvægur í ljósi þeirra fjárfestingarákvarðana sem framundan eru vegna stórframkvæmda. Stjórnarmenn höfðu einnig áhyggjur af því að ófriður á vinnumarkaði gæti reynst atvinnulífinu dýrari þegar upp væri staðið en að standa við kjarasamninga gagnvart launþegahreyfingunni. Hins vegar er staðan enn óljós gagnvart stöðugleikasáttmálanum og er enn inn í myndinni að SA og ASÍ segi sig í sameiningu frá stöðugleikasáttmálanum og lýsi þar með yfir opinberri andstöðu við stefnu ríkisstjórnarinnar í skatta og atvinnumálum ef samningar takast ekki á allra næstu dögum. Vega þar þyngst kröfur atvinnulífsins að stórframkvæmdir geti hafist án tafar og að vextir lækki þannig að fjárfestingar bæði erlendra og innlendra aðila geti farið í gang. Fátt er mikilvægara en að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar - að atvinnulífið geti fjárfest, skapað verðmæti og þar með ný störf. Á næstu dögum verður reynt til þrautar að ná niðurstöður um framtíð stöðugleikasáttmálans. Stöðugleikasáttmálinn rammaði inn hvernig skipting milli skattahækkana og niðurskurðar í ríkisútgjöldum skyldi skiptast en þar er gert ráð fyrir að 45% skuli nást með hærri tekjum en 55% með niðurskurði í rekstri hins opinberra. Nýleg skýrsla ríkisendurskoðunar gefur til kynna að stjórnvöld verða að beita mun agaðri vinnubrögðum ef það markmið á að nást að lækka ríkisútgjöld eins mikið og nauðsynlegt er. En í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir tilmæli og sparnað er fyrirséð að margar stofnanir ríkisins muni fara verulega fram úr fjárlögum og uppsafnaður vandi þeirra aukast. Er félagsmönnum bent á að kynna sér þessa skýrslu á heimasíðu ríkisendurskoðunar http://www.rikisend.is/files/skyrslur_2009/framkvaemd_fjarl.pdf Fyrirtæki í einkageiranum gera þá skýlaus kröfu að ríkisvaldi beiti af sömu hörku niðurskurði eins og einkafyrirtæki hafa þurft að gera á undanförnum mánuðum - bæði hvað varðar niðurskurð á almennum rekstrarkostnaði en ekki síður launakostnaði enda verða sömu lögmál um aðhald og sparnað að gilda á báðum stöðum. Atvinnulífið mun ekki sætta sig við neitt annað - ríkisvaldið mun ekki geta sent fyrirtækjum og heimilum hærri reikning en fyrirhugað er nú þegar. Baráttukveðjur f.h. stjórnar SVÞ Margrét Kristmannsdóttir formaður |