|
Ný þjónusta: Rekstrarráðgjöf til félagsmanna SVÞ |
|
|
Samtök verslunar og þjónustu hafa ákveðið að bjóða upp á almenna rekstrarráðgjöf til félagsmanna sinna frá og með 1. nóvember 2009. Vegna þeirra efnahagslegu áskorana sem viðskiptalífið mun takast á við næstu misseri er mikilvægt að fyrirtæki fái allan mögulegan stuðning.
Ólafur Reynir Guðmundsson, lögfræðingur SVÞ, mun sjá um ofangreinda rekstrarráðgjöf. Ólafur Reynir hefur starfað sem fyrirtækjaráðgjafi hjá Accenture og Citibank, ásamt því að hafa stundað nám við Harvard og IE Business School.
Beinn sími: 511 3007, gsm 690 5100, netfang:
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að ræða við sérfræðing SVÞ eru beðnir um að panta tíma, koma með þau gögn sem ræða þarf og leggja fram tilteknar spurningar. Gert er ráð fyrir 45 mín. viðtali á skrifstofu SVÞ þar sem félagsmenn geta í fullum trúnaði rætt rekstur sinn, til að mynda:
• Fjárhagslega endurskipulagningu
• Almenna hagræðingu
• Markaðsmál
• Bókhald
• Stefnumótun
Vakin er athygli á því að engin gögn um rekstrarmál félagsmanns eru geymd hjá SVÞ eftir að viðtali lýkur.
Með hliðsjón af erfiðum rekstrarskilyrðum er mikilvægt að hagsmunasamtök aðstoði fyrirtæki við að skerpa rekstrarsýn og hagræða. Sérstaklega er mikilvægt að fyrirtæki geti leitað til hlutlauss aðila til að fá ný sjónarmið um rekstur sem og til þess að geta rætt almennt um horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Félagsmenn verða upplýstir um hvert þeir eiga að leita ef rekstrarvandi þeirra kallar á sérstakar lausnir.
Rekstrarráðgjöf SVÞ er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Fyrir hönd SVÞ,
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri.
|