Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Nám í flutningafræðum
Nám í flutningafræðum Prenta Tölvupóstur
hsklinn_s_fr_perlunni_vefur2.jpgFlutningasvið SVÞ fagnar því  að Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík mun bjóða upp á nám í flutningafræðum í janúar 2010. Er þar með stigið mikilvægt skref í þá átt efla fagmenntun í atvinnugreininni - flutningum - á Íslandi. Vonandi mun þetta nám einnig hafa þau áhrif að efla vitund almennt í samfélaginu um flutninga og samfélagslegt mikilvægi atvinnugreinarinnar til framtíðar.


Þróun og vöxtur í atvinnugreininni – flutningum – hefur verið gríðarleg á Íslandi síðustu 20 ár. Fjöldi fólks starfar nú við það að hafa umsjón með útflutningi fisks með flugi og við það að hafa umsjón með innflutningi alls kyns vöru sem flutt er með flugi til landsins. Þetta fólk starfar á mjög víðu sviði allt frá því að taka við vörunni hjá framleiðanda sem kannski er staddur á Þórshöfn á Langanesi þar til varan er kominn um borð í flugvélina á leið til Bretlands.

Sérþekkingin sem þörf er á til að flytja vöru á milli staða er ótrúlega víð og að sama skapi mikilvæg til þess að ekkert fari úrskeiðis. Það er „keðjan“ sem gildir. Fólkið sem starfar í greininni á öllum stigum skiptir öllu máli því varan fer ekkert af sjálfu sér. Er það von flutningasviðsins að þetta nám eigi eftir að hafa snjóboltaáhrif á nám í samgöngum og vöruflutningum til framtíðar.
Nánari upplýsingar um námið veitir Charlotta Karlsdóttir í síma 599 62 58.
 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg