| Þjófnaðargengi í verslunum |
|
|
Öryggishópur SVÞ bíður enn eftir svari frá dómsmálaráðherra um hvort heimilt sé að hleypa af stokkunum verkefninu „Endurheimt verðmæta“. Verkefnið hefur, eins og kunnugt er, það að markmiði að stemma stigu við þeirri afbrotaöldu sem verslunarfyrirtækin eiga við að glíma og jafnframt að auðvelda lögreglu störf sín. Þjófnaðir í verslunum eru vandamál sem ekkert lát er á.Svo virðist sem yfirvöld standi algerlega ráðþrota frammi fyrir þessum vanda. Sömu þjófagengin, öll af erlendum uppruna, verða uppvís að hverju brotinu á fætur öðru. Fólkið er handtekið, málið telst upplýst, fólkinu er sleppt og það tekur strax upp fyrri iðju á ný. Skipulögð glæpastarfsemi hefur skotið rótum á Íslandi. Því fer fjarri að slík brotastarfsemi sé bundin við alvarlegri brot eins og mannsal og fíkniefni. Þjófnaðargegnin sem koma hingað reglulega til þess að stela úr verslunum ganga skipulega til verks. Það sést á þeim fjölmörgu myndum sem náðst hafa í öryggiskerfum verslana. Getuleysi lögreglunnar til að fást við þessi mál virðist algert. Stjórnvöld skortir úrræði sem hafa varnaðaráhrif. Tjónið sem hlýst af þessari starfsemi skiptir milljörðum króna á ári hverju. Verslunarfyrirtækin geta ekki búið við þetta ástand lengur. |