Flutningasvið SVÞ fagnar því að Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík mun bjóða upp á nám í flutningafræðum í janúar 2010. Er þar með stigið mikilvægt skref í þá átt efla fagmenntun í atvinnugreininni - flutningum - á Íslandi. Vonandi mun þetta nám einnig hafa þau áhrif að efla vitund almennt í samfélaginu um flutninga og samfélagslegt mikilvægi atvinnugreinarinnar til framtíðar.
Þróun og vöxtur í atvinnugreininni – flutningum – hefur verið gríðarleg
á Íslandi síðustu 20 ár. Fjöldi fólks starfar nú við það að hafa umsjón
með útflutningi fisks með flugi og við það að hafa umsjón með
innflutningi alls kyns vöru sem flutt er með flugi til landsins. Þetta
fólk starfar á mjög víðu sviði allt frá því að taka við vörunni hjá
framleiðanda sem kannski er staddur á Þórshöfn á Langanesi þar til
varan er kominn um borð í flugvélina á leið til Bretlands.
Sérþekkingin sem þörf er á til að flytja vöru á milli staða er ótrúlega
víð og að sama skapi mikilvæg til þess að ekkert fari úrskeiðis. Það er
„keðjan“ sem gildir. Fólkið sem starfar í greininni á öllum stigum
skiptir öllu máli því varan fer ekkert af sjálfu sér. Er það von
flutningasviðsins að þetta nám eigi eftir að hafa snjóboltaáhrif á nám
í samgöngum og vöruflutningum til framtíðar.
Nánari upplýsingar um námið veitir Charlotta Karlsdóttir í síma 599 62 58.
|