Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Áskorun til samgönguráðherra!
Áskorun til samgönguráðherra! Prenta Tölvupóstur
vai_skannad_0005.jpgNú þegar samgönguráðherra hefur ákveðið að draga til baka undanþágubeiðni um aksturs- og hvíldartímareglur sem þó hafði fengist staðfest af Fastanefnd EFTA í Brussel skorar Flutningasvið SVÞ ráðherra til að beita sér og sjá til þess að embættismenn hans fari með skilning á því um hvað málið snýst til Brussel!

Beiðni um undanþágur frá ítrustu kröfum aksturs- og hvíldartímareglna ESB á Íslandi snýst um íslenskar aðstæður og staðhætti og ekkert annað. Að íslensk stjórnvöld átti sig á því að hér á landi er engum hraðbrautum til að dreifa og að íslenskir vegir, vegalengdir og veðurfarsaðstæður eru í engu sambærilegar við aðstæður á meginlandi Evrópu.

Að á tiltölulega stuttum vegalengdum Íslands, misjöfnum vegum og í slæmum veðrum eiga önnur öryggisatriði að hafa vægi en „klukkustjórnun“ atvinnubílstjóra. Að á íslenskum vegum og í íslenskum veðrum er mun farsælla og öruggara fyrir alla að leyfa bílstjórunum að láta daglegan aksturstíma og aksturstíma þar til þeir hvíla sig stjórnast af aðstæðum en ekki af klukkunni.

Um það snýst þetta mál allt saman og hefur gert frá upphafi. Til er skýrsla sérfræðinganefndar m.a. sérfræðings í svefnrannsóknum sem styður þetta viðhorf.
Skýrsluna má finna hér.

Skilningsleysi stjórnvalda á hagsmunum Íslands himinhrópandi

Það er komið langt á þriðja ár síðan að lítill hópur kom saman til fundar í húsnæði SVÞ til að ræða og leita lausna á máli er olli fyrirtækjum þeirra og starfsmönnum miklum óþægindum og var ekki hægt að sjá neina skynsemi í. Þessi hópur tók þá ákvörðun að skora á þáverandi samgönguráðherra Sturlu Böðvarsson að gera það sem gera þyrfti til að lagfæra þessa þætti sem vísað er til. Vísað er til fundar hagsmunaaðila í flutningum vegna aksturs- og hvíldartímareglna Evrópusambandsins og þá nýlegrar útfærslu íslenskra stjórnvalda á þeim með sektarreglugerð og upptöku punkta.
Barátta flutningasviðs SVÞ fyrir lagfæringum á túlkun og framkvæmd íslenskra stjórnvalda á aksturs- og hvíldartímareglum ESB hófst með tölvupósti til samgönguráðherra 16. Apríl 2007 og hefur verið viðhaldið allar götur síðan. 

Það væri að æra ótstöðugan að lýsa því ferli sem þetta mál hefur fengið hjá íslenskum stjórnvöldum á þeim tíma sem liðinn er frá því að þetta mál fór af stað. Það er ótrúlegt til þess að vita hvers konar verklag viðgengst við innleiðingu og framkvæmd ESB reglugerða hér og dæmið um aksturs- og hvíldartímareglur er svo himinhrópandi að það verður að upplýsa.

Löggjöf fyrir ESA

Vilji íslenskra stjórnvalda og verklag í málinu sýnir að í þessu máli stendur metnaður þeirra til að svara vilja og kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA en hagsmunir íslensks atvinnulífs skipta engu máli. Slíkt verklag er óþolandi fyrir allt atvinnulíf í landinu og getur ekki gengið til lengdar – því verður að breyta.
Nú er lag fyrir samgönguráðherra að breyta því í verki – er hér með skorað á samgönguráðherra að gera það!
Nú þegar fulltrúar hans fara aðra ferð til Brussel með undanþágubeiðni frá þessum reglum er skorað á ráðherra að sjá til þess að sú undanþágubeiðni snúist um það sem lagt var af stað með í upphafi en ekki útþynntar, flóknar undanþágur sem verður erfiðleikum bundið að fylgja eftir í framkvæmd og eru eins og þær eru vegna skýrrar kröfu samgönguráðuneytisins um að ASÍ og SA yrðu að komast að samkomulagi um útfærslu þeirra.

Beiðni vöruflutningingagreinarinnar hefur frá upphafi snúið að því að fá 1 klst aukalega í daglegan akstur og að fá hálftíma aukalega í aksturstíma fram að hvíld, burtséð frá því á hvaða leiðum landsins viðkomandi akstur fer fram. Að í 6. gr. þar sem talað er um 9 klst verði talað um 10 klst. Að þar sem talað er um 10 klst verði talað um 11 klst. Að þar sem talað er um 4 ½ tíma verði talað um 5 klst.
Þessa skýru almennu reglu er nú skorað á samgönguráðuneytið að fara með í aðra ferð sína til Brussel!

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg