| „Made in“ merkimiða mótmælt |
|
|
Eurocommerce, Evrópusamtök verslunar hvetja aðildarríkin til að mótmæla tillögu framkvæmdastjórnarinnar um lögboðna upprunamerkingu „Made in“ á ákveðna vöruflokka við innflutning til ESB. Flutningsmenn tillögunnar halda því fram að með tillögunni sé verið að verja rétt neytenda. Eurocommerce varar hins vegar eindregið við þessum áformum þar sem tillagan muni valda miklum kostnaði og óhagræði. Samkvæmt útreikningi framkvæmdastjórnarinnar er áætlað að kostnaður við að merkja hvert stykki af fatnaði verði 1,50 evrur og skófatnað 2 evrur. Telur EuroCommerce að verndarstefna sé til skaða á tímum þegar Evrópa þarfnast hagvaxtar og þessi áform séu neytendum ekki til hagsbóta. Sjá fréttatilkynningu EuroCommerce. |