| Danir feta í fótspor Íslendinga |
|
|
Landflutningagreinin í Danmörku fetar í fótspor þeirrar íslensku og hefur ákveðið að hrinda úr vör ímyndarátaki fyrir greinina undir yfirskriftinni „höldum Danmörku gangandi“. Í fyrsta umgangi verður kröftunum beint að því að virkja fjölbreytilega starfsemi atvinnugreinarinnar og samstarfsaðila hennar og síðari hluta árs 2010 verður átakið sýnilegt almenningi.
Frétt um ímyndarátakið í Danmörku má finna hér:
Nu vil transportbranchen være populær Það er gaman að geta þess að í september 2007 var ímyndarátak flutningasviðs SVÞ kynnt á fundi samgönguhóps BUSINESSEUROPE í Brussel sem fyrirmynd að því sem atvinnugreinin í Evrópu gæti gert til að efla meðvitund almennings um hlutverk flutningabíla fyrir samfélagið . Má finna þá kynningu hér. |