| Starfsmenntaverðlaunin 2009 |
|
|
Óskað er eftir tilnefningum þessa dagana til Starfsmenntaverðlaunanna 2009. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna framúrskarandi starf í fræðslumálum og starfsmenntun. Verðlaunin eru veitt í flokki: fyrirtækja, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki, þar sem félagasamtök og einstaklingar geta tekið þátt.Tilnefningar skal senda á sérstökum eyðublöðum sem eru á slóðinni: www.starfsmenntarad.is og er frestur til að skila þeim til og með 3. nóvember næstkomandi. Auglýsingin á pdf sniði. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Starfsmenntaráði, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík, sími 515 4800, www.starfsmenntarad.is . Á síðasta ári vann Samskip hf. í flokki fyrirtækja og Fræðslusetrið Starfsmennt vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið er í samstarfi við Sýslumannafélag Íslands vann í flokki skóla og fræðsluaðila. Ekki voru veitt verðlaun í opnum flokki. |