Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir arrow Dagskrá fundar í Húnaveri laugardaginn 10. okt. um styttingu leiða
Dagskrá fundar í Húnaveri laugardaginn 10. okt. um styttingu leiða Prenta Tölvupóstur

hunaver_fundarbod.jpgLeið ehf. og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar boða til opins fundar um vegamál á Norðurlandi, mögulegar vegstyttingar milli landshluta, gerð aðalskipulags ofl. í Húnaveri í Langadal, laugardaginn 10. október nk. og hefst hann kl. 13:15. Fundurinn er opinn öllum.

Auðunn Hálfdánarson verkfræðingur hjá Vegagerðinni í Borgarnesi mun mæta á fundinn en það lá ekki fyrir þegar gengið var frá dagskránni.

Hér má nálgast dagskrá fundarins.

Hver á að ráða legu hringvegarins?
Hver á að ákveða hvort að þjóðvegur númer 1 verður styttur eða ekki?
Kemur okkur við að möguleg stytting hringvegarins á milli Reykjavíkur og Akureyrar er afgreidd út af borðinu án þess að við fáum að vita af því?


Stytting leiða á norðurlandi, gerð aðalskipulags og samgönguáætlunar er yfirskrift fundar sem áætlað er að halda í Húnaveri laugardaginn 10. október næstkomandi. Til fundarins hafa verið boðaðir m.a. þingmenn norðurlandskjördæma, samgönguráð og fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu.

Tilefni fundarins er að vekja athygli á aðalskipulagi og legu þjóðvegarins. Þeirri staðreynd að sveitarfélögin Skagafjörður og Blönduósbær hafa gengið frá aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir legu þjóðvegar númer eitt á sama stað og hann liggur nú – í gegnum Blönduós og framhjá Varmahlíð. Þetta gera sveitarfélögin þrátt fyrir að fyrir liggi hugmyndir um mögulega styttingu þjóðvegarins milli Reykjavíkur og Akureyrar um 20 kílómetra.

Markmið núgildandi samgönguáætlunar um styttingu á milli helstu kjarna landsins kemur ekki til álita í ferlinu sem er augljós ástæða til að vekja athygli á málinu. 
Greiðar, hagkvæmar og öruggar samgöngur eru mikilvæg markmið sem gera má ráð fyrir að séu sameiginlegir hagsmunir atvinnulífs og almennings í landinu. Ef að þau markmið ná ekki einu sinni að koma til álita þegar kemur að framkvæmdaáætlun – til hvers eru þau þá?
Flutningasvið SVÞ gerir athugasemdir við þessa stöðu mála og fagnar mjög frumkvæði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Leiðar ehf. um málið en þessir aðilar standa fyrir umræddum fundi.
Verklag ákvarðanatöku um samgönguframkvæmdir á Íslandi á árinu 2009 virðist ekki byggja á neinni aðferðafræði . Ákvarðanir um allar framkvæmdir allt niður í smæstu atriði eins og lagningu brúa eða lagfæringu á tilteknum vegspotta virðast tilviljunum háðar og oft er ómögulegt að átta sig á hvaða atriði eru að baki forgangsröðun eða ákvörðunum sem teknar eru. Valdið til að velja hvað er gert og hvar virðast í dag á valdi stjórnmálamannanna einna, hvort heldur eru í sveitarstjórnum eða á Alþingi.

Þessu þarf að mati flutningasviðs SVÞ að breyta í samgönguáætlun til næstu fjögurra ára. Það þarf ekki að fara lengra en líta til deilna um Héðinsfjarðargöng, tvöföldun Suðurlandsvegar, Vaðlaheiðargöng eða Sundabraut til að færa rök fyrir því. Ríkisvaldi og einstaka sveitarfélögum landsins er ítrekað stillt upp sem andstæðingum og rökræða sem byggir á tilteknum forsendum er ekki til staðar. Hagsmunir heildarinnar eru fyrir borð bornir og annað hvort teknar tilviljanakenndar ákvarðanir eða ákvarðanir eru ekki teknar.
Flutningasvið SVÞ hefur mikla hagsmuni að því að horft sé heildstætt á fjárveitingar ríkisins til samgönguframkvæmda og í framhaldi af því forgangsraðað. Fjárveitingar til samgöngukerfisins hljóta að eiga að byggja á fyrirfram ákveðnum forsendum og markmið sem sett eru í samgönguáætlun hljóta að eiga að ná fram að ganga í framkvæmdaáætlun. Til að svo megi verða þarf að gera breytingar á ákvörðunarvaldi  um aðalskipulag og framkvæmd samgönguáætlunar. 

Þegar framkvæmdum er stillt upp sem mismunandi valkostum er forgangsatriði að allar forsendur séu sambærilegar og fyrirliggjandi.

 
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Skýrsla um vörugjöld

Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg